1 af 6

Nailberry

Nailberry – Rescue serum

Nailberry – Rescue serum

Verð 3.699 ISK
Verð Verð 3.699 ISK
Afsláttur Uppselt

Öflug endurbygging fyrir skemmdar neglur. Djúpvirkt og endurnærandi serum sem hjálpar nöglum að endurheimta styrk, heilbrigði og náttúrulegan glans.


Vörulýsing

Formúlan er styrkt með bíótíni, hexanali, trönuberja-bíópeptíðum ásamt fjöl- og alfa-hýdroxýsýrum. Þessi einstaka formúla, sem inniheldur 97,5% náttúruleg innihaldsefni, smýgur hratt inn í neglurnar og myndar ósýnilega matta verndarfilmu sem hjálpar til við að endurbyggja og endurlífga neglurnar á aðeins 7–14 dögum.

68% sögðu neglurnar hafa lagast eftir 7 daga
95% sögðu neglurnar hafa verið betur rakamettaðar eftir 7 daga
79% sögðu brothættleiki og þurrkur í nöglum hefði minnkað eftir 14 daga
84% sögðu neglurnar hafa orðið sterkari eftir 14 daga
Niðurstöður notendaprófana byggðar á 19 þátttakendum sem báru tvö lög af Rescue Serum á neglurnar daglega í tvær vikur.

Nailberry naglalökkin eru hugarsmíð Soniu Hully. Hún ákvað strax í upp­hafi að gefa engan af­slátt, hvorki af heilsunni né hátískunni. Í dag hafa Nailberry naglalökkin öðlast sess sem hátískuvara sem notast er við á tískuvikum í stórborgum. En þú get­ur líka keypt þau á skemmtilegustu jógastöðunum t.d. í London. Það er fallegt að bera naglalakk sem andar og nærir.

 

Notkunarleiðbeiningar

Til að ná sem bestum árangri skal nota serumið daglega í 2 vikur.

Berðu eitt lag á neglurnar, bíddu í 30 sekúndur og berðu síðan annað lag yfir.
Leyfðu seruminu að vinna sig inn í neglurnar í 2–3 mínútur.
Endurtaktu skref 1 og 2 daglega í 2 vikur.

Við mælum með að Rescue Serum sé notað eitt og sér á meðferðartímabilinu, án grunnlakkar eða naglalitar yfir. Þornunartími getur einnig verið mismunandi eftir ástandi naglanna.

Sérhannaði burstinn tryggir fullkomna og jafna áferð yfir alla nöglina, frá rót að enda.

Yfirfara upplýsingar